Vöntun á ís og dugleg kona
Sænskut jazz komin á fóninn og dagurinn er byrjaður. Sem sagt búin að fá mér kaffi og bara tiltölulega vakandi miðað við hversu ókristilegur tímin er! Ég hef ekki verið fylgjandi eða trúað á líf fyrir hádegi en þetta virðist vera að breytast með aldrinum!!!! Gaman að segja frá þvi að Niðurrif er að verða búið og uppbygging er hafin í drottningarhöllinni! Gengur alveg ljómandi enda hef ég fengið ómetanlega hjálp! takk takk takk takk takk takk!!!!!!!!!
Planið fyrir daginn er að halda fyrirlestur eftir hálftíma eða svo.. vinna í ritgerðinni fram á dag.. trítla mér í bykó og kaupa baðkar og parket og leigja fræsara! já kæru börn maður er engin venjulegur iðnaðarmaður:) Svo áður en iðnaðardýrið brýst fram í kvöld á að sjálfsögðu að fara í skvass og reyna að vinna í þetta skiptið!!!! Dugleg kona :) aaaammmm svo í öllu þessu býð ég alveg eftir að geta átt kvöld með ís og mynd og bara að hugga sér!! hlakka til :)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home